ID: 18325
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1889

Kristján Daníelsson Mynd VÍÆ III

Sigurlína Ólafsdóttir Mynd VÍÆ III
Kristján Jens Daníelsson fæddist í Winnipeg 12. janúar, 1889. Dáinn þar 20. september, 1964. Dr. Kristján Jens Backman vestra.
Maki: 17. nóvember, 1915 Sigurlína Ólafsdóttir f. 21. mars, 1892. Johnson vestra fyrir hjónaband.
Börn: 1. Thruda Lillian f. í Winnipeg 8. desember, 1919.
Kristján var sonur Daníels H Backman og Hólmfríðar S Kristjánsdóttur í Manitoba. Hann gekk menntaveginn og var læknir í Winnipeg um árabil. Foreldrar Sigurlínar voru Ólafur Guðmundsson Johnson og Sigþrúður Guðríður Guðbrandsdóttir, sem víða bjuggu í Vestur-Kanada.
