Kristján Bjarnason

ID: 6817
Fæðingarár : 1887
Dánarár : 1958

Kristján Bjarnason fæddist í N. Múlasýslu 29. maí, 1887. Dáinn 19. janúar, 1958 í Vatnabyggð.

Maki: 14. júlí, 1914 María Á Kristjánsdóttir f. í Osnabrock, N. Dakota 7. ágúst, 1895.

Börn: 1. Ólafur Bjarni f. 10. apríl, 1918, d. 15. desember, 1945 á Ítalíu 2. Kristrún Elma f. 25. september, 1921 3. Arnbjörg Ástríður f. 10. janúar, 1923 4. Kristján Marvin f. 20. apríl, 1925 5. Páll Edwin f. 26. nóvember, 1927 6. Walther Gísli f. 24. október, 1930 7. Haraldur Emil f. 3. október, 1934. Tvö börn dóu ung.

Kristján flutti til Vesturheims árið 1900 með foreldrum sínum, Bjarna Árnasyni og Ástríði Sigurðardóttur landnema nærri Kristnesi í Vatnabyggð. Þangað flutti María árið 1905 frá N. Dakota með sínum foreldrum, Kristjáni Ólafssyni og Guðrúnu Þorláksdóttur. Kristján og María bjuggu í Leslie í Vatnabyggð 1914-1929, í Winnipegosis í Manitoba 1929-1940 og í Foam Lake eftir það.