Kristján Björnsson

ID: 7143
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Kristján Björnsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1872. Kristján B. Skagfjörð vestra.

Maki: 1898 Sæunn Magnúsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1872.

Börn: 1. Lilja (Lily) 2. Odda 3. Steina 4. Rut (Ruth) 5. Bertha.

Kristján fór vestur til Ontario í Kanada árið 1873 með foreldrum sínum, Birni Skagfjörð og Guðlaugu Pálsdóttur. Þau voru fyrst í Rosseau og svo Omemee. Þaðan flutti fjölskyldan til Nýja Íslands og árið 1881 í Hallsonbyggð í N. Dakota. Kristján fór árið 1891 vestur í Lögbergsbyggð í Saskatchewan þar sem hann nam land. Fór þaðan árið 1894 aftur til N. Dakota og settist að vestur af Akra. Það var svo árið 1900 að hann keypti land í Brownbyggð af fylkistjórninni því hann var búinn að nýta rétt sinn til ókeypis lands í Kanada. Á næstu árum lét hann mikið að sér kveða í byggðinni og smám saman óx landaeign hans. Var hann í allmörg ár stærsti landeigandi byggðarinnar. Hann flutti svo til Winnipeg árið 1907 og sneri sér að fasteignasölu en átti áfram lönd sín í Brownbyggð. Árið 1911 seldi hann allt og flutti vestur til Vancouver og seinna suður til Kaliforníu.