ID: 8877
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1952
Kristján Indriðason fæddist 15. janúar, 1866 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn árið 1952 í N. Dakota.
Maki: Sigríður Brynjólfsdóttir f. 16. janúar, 1871 í Húnavatnssýslu, d. 7. október, 1918 í N. Dakota.
Börn: 1. Percival f. 1898, d. 1944 í N. Dakota 2. Magnús Brynjólfur f. 23. mars, 1899 3. Skafti Þórarinn f. 1901, d. 1988 4. Kristján Brynjólfur f. 10. apríl, 1903 5. Stefán f. 15. júní, 1906.
Kristján flutti vestur árið 1876 með foreldrum sínum, Indriða Sigurðssyni og Sigurbjörgu Kristjánsdóttur sem settust að í Nýja Íslandi í Manitoba. Hann flutti með þeim suður til Mountain í N. Dakota fyrir 1880 og var bóndi þar um slóðir alla tíð.
