Kristján Jónsson

ID: 9827
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1919

Kristján Jónsson og Arnbjörg Jónsdóttir Mynd FLNÍ

Kristján Jónsson: Fæddur í Fellaseli í Köldukinn í S. Þingeyjarsýslu árið 1854. Dáinn 1919 í Manitoba.

Maki: Arnbjörg Jónsdóttir f. 1858 í Hjarðarhaga í Jökuldal í N. Múlasýslu. Dáin 1951 í Manitoba.

Börn: 1. Margrét Guðlaug 2. Jón Arngrímur dáinn 1935 3. Tómas Þorvaldur 4. Jónína Helga.

Kristján fór vestur árið 1874 og dvaldi í Kinmount, Ontario fyrsta árið. Með honum vestur fór Arngrímur bróðir hans. Kristján var í landkönnunarnefndinni sumarið 1875 sem valdi stað undir Nýja Ísland. Hann flutti þangað það ár, bjó í Víðirnesbyggð og nefndi staðinn Lund. Flutti til Winnipeg og þaðan í Argylebyggð árið 1881. Tók þar land en flutti af því til Baldur 1890 og hóf verslunarrekstur.