Kristján T Dínusson

ID: 9744
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1945

Kristján Tryggvi Dínusson fæddist 30. apríl, 1873 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Pembina sýslu í N. Dakota 23. júlí, 1945.

Maki: 2. maí, 1896 Hallfríður Guðbrandsdóttir f. 17. mars, 1875 í N. Múlasýslu, d. árið 1942 í N. Dakota.

Börn: 1. Guðný f. 24. janúar, 1897 2. Guðbrandur f. 26. nóvember, 1898 3. Jónatan f. 1900, d. 1903 4. Sigríður Anna f. 3. febrúar, 1903 5. Kristján Dinus f. 24. nóvember, 1907 6. Þorbjörg Lílja f. 26. mars, 1911 7. Pálína (Pauline) Helga f. 2. febrúar, 1913 8. Kristín (Christine) f. 17. júlí, 1915 9. William Erling f. 28. apríl, 1920.

Kristján fór vestur árið 1879 með foreldrum sínum, Dínusi Jónssyni og Kristjönu Árnadóttur sem settust að í N. Dakota. Hallfríður fór vestur árið 1875 með sínum foreldrum, Guðbrandi Erlendssyni og Sigríði Hávarðsdóttur. Þau settust að í Marklandi í Nova Scotia og bjuggu þar nokkur ár en fluttu svo þaðan til N. Dakota. Kristján og Hallfríður bjuggu í Akrabyggð.