Kristjana Sigbjörnsdóttir

ID: 14376
Fæðingarár : 1876
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla

Kristjana Solveig Sigbjörnsdóttir fæddist í S. Múlasýslu árið 1876. Hofteig vestra.

Maki: 27. maí, 1896.  Sigurður Gunnlaugsson f. í S. Múlasýslu 1. júlí, 1864, d. í Stillwater í Minnesota 16. desember, 1943. Gunlogson vestra

Börn 1. Grace Lillian f. 30. apríl, 1897 2. Joan Guðfinna f. 27. júlí, 1898 3. Halldóra Guðný f. 26. október, 1902 4. Christine Steinunn f. 26. ágúst, 1905 5. Friðrik Gunnar f. 5. júní, 1909 6. Frances Sophia f. 3. júlí, 1912.

Sigurður flutti vestur árið 1878 með foreldrum sínum, Gunnlaugi Magnússyni og Guðfinnu Vilhjálmsdóttur. Þau settust að í Swede Prairie hreppi í Yellow Medicine sýslu. Kristjana fór sama ár vestur með sínum foreldrum, Sigbirni Sigurðssyni og Steinunni Magnúsdóttur sem settust að í Westerheim hreppi nærri Minneota í Minnesota. Sigurður og Kristjana bjuggu í Yellow Medicine, fluttu þaðan til Montevideo og seinna Minneapolis.