Kristlaug Einarsdóttir

ID: 10804
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1833
Fæðingarstaður : N.Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1898

Kristlaug Einarsdóttir fæddist í N. Þingeyjarsýslu árið 1833. Dáin í N. Dakota 14. október, 1898.

Maki: Gestur Jónsson, dó á Íslandi.

Börn: 1. Jóhann f.1858 2. Sigurjón f. 1860 3. Guðni f. 2. maí, 1862, d. 18. júní, 1923.

Kristlaug, ekkja, og sonur hennar Guðni fluttu vestur til N. Dakota árið 1887. Þangað voru þá synir hennar komnir, þeir Jóhann og Sigurjón. Hún og Guðni settust að á landi í Eyfordbyggð, suður af Mountain.