Lára J Árnadóttir

ID: 18467
Fæðingarár : 1898

Lára og Benjamín Mynd A Century Unfolds

Lára Jakobína Árnadóttir fæddist í Hnappadalssýslu 3. febrúar, 1898.

Maki: 22. júní, 1939 Benjamín Ingimar Danielsson f. í Árborg, Manitoba 25. febrúar, 1895.

Maki: 22. júní, 1939 Lára Jakobína Árnadóttir f. í Hnappadalssýslu 3. febrúar, 1898.

Barnlaus.

Lára flutti til N. Dakota 1901, með móður sinni, ekkjunni Þorbjörgu Runólfsdóttur. Þar giftist Þorbjörg Magnúsi Jónssyni Mýrdal árið 1903 og fluttu þau í Arborg árið 1911. Benjamín var sonur Daníels Daníelssonar og Maríu Benjamínsdóttur, sem vestur fluttu árið 1887. Þau bjuggu á Brekku í Árnesbyggð. Þar ólst hann upp og  fór ungur að hjálpa til við búskapinn.  Hann nam land árið 1913 nokkru norður af Árborg. Það reyndist lélegt akurlendi en gras óx þar vel og þar var ætíð heyjað. Þangað fluttu Benjamín og Lára skömmu eftir brúðkaupið og bjuggu þar lengi. Benjamín vann í byggðinni fyrir bændur m.a. Gunnar Simundson. Þau seldu svo landið og fluttu vestur til Alberta og bjuggu í Edmonton.