ID: 2674
Fæðingarár : 1879
Fæðingarstaður : Borgarfjarðarsýsla

Lárus Bjarni Rafnsson VÍÆ I
Lárus Bjarni Rafnsson fæddist á Akranesi í Borgarfjarðarsýslu 3. febrúar, 1879. Nordal vestra
Maki: 1902 Rósa Davíðsdóttir f. 9. nóvember, 1866 í Eyjafjarðarsýslu, d. 1948.
Börn: 1. Anna Karólína f. 6. september, 1902.
Lárus fór vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1900 þar sem hann vann næstu fjögur árin við húsbyggingar. Hann flutti í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905 og nam land nærri Leslie. Þar var hann bóndi í 32 ár en 1937 flutti hann til Gimli í Manitoba. Rósa fór vestur til Manitoba árið 1893.
