Laufey Árnadóttir

ID: 12695
Fæðingarár : 1887
Dánarár : 1976

Laufey Árnadóttir fæddist í N. Múlasýslu árið 1887. Dáin í Wynyard árið 1976. Laufey Hall vestra.

Maki: 1912 Ásvaldur Kjartan Jónasson f. í Garðarbyggð í N. Dakota 11. febrúar, 1884, d. í Wynyard, Saskatchewan árið 1970. Valdi Hall vestra.

Börn: 1. Franklin 2. Helga 3. Jónas 4. Ólöf (Olavia) 5. Edna d. 5 ára 6. Árni.

Ásvaldur var sonur Jónasar Hall og Sigríðar Herdísar Kristjánsdóttur í Garðabyggð í N. Dakota. Laufey var dóttir Árna Jónssonar og Helgu Hallgrímsdóttur landnema í Vatnabyggð í Saskatchewan. Ásvaldur ólst upp í Garðarbyggð en flutti þaðan árið 1905 norður í Vatnabyggð og nam land norður af Wynyard.