Magnús Bjarnason

ID: 8449
Fæðingarár : 1839
Fæðingarstaður : A. Skaftafellssýsla

Magnús Bjarnason

Magnús Bjarnason fæddist 10. desember, 1839 í A. Skaftafellssýslu.

Ókvæntur og barnlaus

Flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1890 frá Akureyri. Hann fór til Mountain í N. Dakota og bjó lengstum hjá Ólafi Ólafssyni og konu hans Guðrúnu Halldórsdóttur.

Hann annaðist sölu á íslenskum bókum, blöðum og tímaritum í íslensku byggðinni í N. Dakota og kenndi jafnframt börnum íslensku einhvern tíma.