Magnús Bjarnason

ID: 11141
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1928

Magnús Bjarnason Mynd VÍÆ3

Rósa Sæunn Sveinsdóttir Mynd VÍÆ3

Magnús Bjarnason fæddist í Skagafjarðarsýslu 7. nóvember, 1863. Dáinn 14. júní, 1928 í Wynyard, Saskatchewan. Stundum kallaður Magnús Black vestra vegna járnsmíðastarfa.

Maki; Rósa Sæunn Sveinsdóttir f. 12. janúar, 1864, d. 17. ágúst, 1937.

Börn: 1. Þórarinn f. í N. Dakota 9. desember, 1890, d. 4. september,1961 2. Hólmfríður Sigrún f.  í N. Dakota 25. nóvember, 1893, d. 3. maí, 1965 í Vancouver 3. Anna Sigríður f. 20. september, 1895 í N. Dakota, d. 9. mars, 1931 4. Bismarck f. 5. október, 1896 í N. Dakota 5. Otto William f. 3. maí, 1898 í N. Dakota 6. Magnús f. 13. október, 1901 í Manitoba 7. Bjarni Sveinn f. 25. júlí, 1905 í Lundarbyggð.

Magnús flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887. Hann fór til Mountain í N. Dakota og þaðan til Hallson þar sem hann bjó til ársins 1899. Þá flutti hann norður í Siglunesbyggð í Manitoba en flúði þaðan vegna flóða í Manitobavatni árið 1901 og settist að í Lundarbyggð. Árið 1915 flutti hann á land í Vatnabyggð í Saskatchewan.

Atvinna :