Magnús Halldórsson

ID: 1876
Fæðingarár : 1850
Fæðingarstaður : Gullbringusýsla

Magnús Halldórsson, Guðbjörg Jónsdóttir og Magnea Mynd FLNÍ

Magnús Halldórsson fæddist í Gullbringusýslu 27. nóvember, 1850.

Maki: 1890 Guðbjörg Jónsdóttir f. í Gullbringusýslu árið 1850.

Börn: 1. Magnea f. 1885 2. Magnúsína 3. Margrét Júlíana. Önnur tvö börn þeirra dóu í æsku.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1886 og settust að í Gimli. Magnús nam land í Víðirnesbyggð og nefndi Sóleyjaland. Þar bjuggu þau í þrjú ár en fluttu þá aftur til Gimli og bjuggu þar síðan.