Magnús M Magnússon

ID: 18946
Fæðingarár : 1874
Fæðingarstaður : Snæfellsnessýsla
Dánarár : 1932

Magnús Melsted Magnússon fæddist í Snæfellsnessýslu 15. mars, 1874. Dáinn í San Diego 5. janúar, 1932.

Maki: 30. janúar, 1908 Vilborg Magnúsdóttir f. 9. desember, 1875 í Reykjavík. Séra Friðrik J. Bergmann gaf þau saman í Manitoba.

Börn: upplýsingar vantar.

Magnús mun hafa flutt vestur til Utah á fyrsta áratug 20. aldar, Vilborg trúlega farið þangað með föður sínum, Magnúsi Einarssyni og systkinum árið 1886. Heimild í Utah segir Magnús Melsted og Vilborgu hafa farið til Winnipeg áður en þau fluttu vestur til Blaine í Washington. Magnús var bókbindari.