
Magnús Þórarinsson

Elísabet Daníelsdóttir Myndir Almanak 1926
Magnús Þórarinsson fæddist 27. júlí, 1856 í Snæfellsnessýslu.
Maki: 1883 Elísabet Daníelsdóttir f. 1860 á Skógaströnd í Snæfellsnessýslu.
Börn: 1. Magnús Hans f. 24. september, 1883 2. Friðrik Hjörtur f. 18. janúar, 1887 3. Guðríður f. 1890 4. Jón H. f. 8. júní, 1892 5. Þórarinn Halldór f. 22. ágúst, 1895 6. Sesselja Karólína f. 1899 7. Daníel f. 1901.
Fóru vestur með sama skipi árið 1883 til Winnipeg. Þar gengu þau í hjónaband og bjuggu í borginni eitt ár. Þá fluttu þau á land í Hallsonbyggð í N. Dakota og bjuggu þar í fáein ár. Fluttu þaðan í Pine Valley byggð fyrir aldamótin, seldu það 1902 og fluttu vestur að Kyrrahafi. Þau fengu lóð í Blaine og reistu sér þar hús og bjuggu þar fram að 1920 en þaðan fluttu þau suður til Everett í Washingtonríki og bjuggu þar síðan.
