Maren Halldórsdóttir

ID: 15786
Fæðingarár : 1848
Fæðingarstaður : V. Skaftafellssýsla
Dánarár : 1926

Maren Halldórsdóttir fæddist 9. ágúst, 1848 í V. Skaftafellssýslu. Dáin 19. desember, 1926 í Spanish Fork.  Maryn Bjarnason á dánarvottorði í Utah.

Maki: 17. apríl, 1876 Gísli Einarsson f. 24. nóvember, 1849 í V. Skaftafellssýslu, d. 17. ágúst, 1934.

Börn: 1. Magnús Kristján (Christian) f. 1885, d. 1916 2. Halldóra f. 1886, d. 1887 3. Gísli f. 1888, d. 1888.

Hálfsystir Marenar, Halldóra Árnadóttir var gift Gísla Einarssyni í Spanish Fork í Utah. Halldóra kostaði vesturför systur sinnar árið 1881 og bjó hún á heimili Halldóru og Gísla. Hann kvæntist henni 24. nóvember, 1881 en tvíkvæni var þá leyft í Utah. Þegar deilur um þennan sið Mormóna risu sem hæst neyddist Maren til að búa í tvö ár í Kanada. Tvíkvænið var svo bannað árið 1890 í Utah. Halldóra átti afar erfitt með að sætta sig við ákvörðun Gísla en sættist að lokum við systur sína sem annaðist hana síðustu æviár hennar í Spanish Fork.