Margrét Ingibjörg Þorsteinsdóttir fæddist á Íslandi 1882. Dáin í Vancouver árið 1972.
Maki: 18. janúar, 1912 Stefán Arngrímsson fæddist í S. Múlasýslu 2. mars, 1878. Dáinn í Vancouver árið 1948.
Börn: 1. Stefán Pétur f. 10. janúar, 1920 2. Þórhallur Marvin f. 25. nóvember, 1928. Ein heimild vestra segir þá ættleidda, önnur syni hjónanna. Beatrice Violet Bergson var uppeldisdóttir þeirra, frænka Margrétar.
Margrét fór vestur til N. Dakota með foreldrum sínum árið 1883. Þau fluttu til Manitoba árið 1893 0g í Vatnabyggð í Saskatchewan um 1911. Stefán flutti vestur til Bandaríkjanna með foreldrum sínum, Arngrími Arngrímssyni og Þorbjörgu Magnúsdóttur árið 1882. Þau settust að í Garðarbyggð í N. Dakota. Þaðan flutti Stefán árið 1905 í Vatnabyggð í Saskatchewan og nam land norður af Mozart.
