Margrét Sigurgeirsdóttir

ID: 10076
Fæðingarár : 1884
Dánarár : 1919

Margrét Sigríður Sigurgeirsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 13. október, 1884. Dáin í Manitoba 31. mars, 1919.

Maki: 17. desember, 1917 Páll Andrésson f. 9. maí, 1881 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Manitoba 25. maí, 1959. Paul A. Anderson vestra.

Barnlaus.

Foreldrar Margrétar voru Sigurgeir Friðfinnsson og Bergljót Jónasdóttir. Hún flutti með þeim vestur um haf árið 1889.Páll fór vestur með foreldrum sínum og bræðrum árið 1887 til Winnipeg í Manitoba. Fjölskyldan settist að í Argylebyggð og þar ólst Páll upp. Páll rak verslun í Glenboro í félagi við Snæbjörn, bróður sinn og nefndu það Anderson Bros.