María Gunnlaugsdóttir

ID: 9593
Fæðingarár : 1886
Dánarár : 1962

María G Hinriksson Mynd VÍÆ IV

María Gunnlaugsdóttir fæddist í S.-Þingeyjarsýslu 3. maí, 1886. Dáin í Selkirk 23. maí, 1962.

Maki: 17. nóvember, 1909 Einar Jón Hinriksson f. í Borgarfjarðarsýslu 7. ágúst, 1885. Dáinn í Manitoba 15. ágúst, 1957.

Börn: 1. Ólöf Edna f. 8. september, 1910 2. Gunnthor John f. 3. september, 1912.

María var dóttir Gunnlaugs Oddssonar  og Guðnýjar Ó Sigfúsdóttur og fór hún með þeim vestur árið 1888. Hún og Einar Jón bjuggu í Selkirk, hann vann hjá Manitoba Steel Foundry.