María Jóhannsdóttir

ID: 8807
Fæðingarár : 1878
Dánarár : 1951

Friðrika María Jóhannsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu 22. desember, 1878. Dáin 30. janúar, 1951 á Gimli í Manitoba.

Maki: Þorkell Bjarni Magnússon fæddist í Árnesbyggð í Nýja Íslandi 5. nóvember, 1878. Dáinn í Nýja Íslandi 7. febrúar, 1945. Þorkell B Johnson vestra.

Börn: 1. Kristjana Magnúsína f. 3. júlí, 1907 2. Soffía Jóhanna f. 3. ágúst, 1909 3. Vilhjálmur Guðjón f. 17. apríl, 1912 4. Þorgerður (Thorgerdur) Margrét f. 28. febrúar, 1914. Tvö önnur börn dóu í æsku.

Þorkell var sonur Magnúsar Jóhannessonar og Kristjönu Jónsdóttur í Árnesbyggð. Foreldrar Friðriku voru Jóhann Árnason og Dóróthea Sofía Abrahamsdóttir. Þorkell var bóndi í Nýja Íslandi.