María K Friðfinnsdóttir

ID: 7478
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1861
Dánarár : 1946

Aftast standa Helgi, Sigurdís og Kristinn. Fyrir framan Friðfinnur, Jón, María og Gestur. Mynd Faith and Fortitude

María Kristín Friðfinnsdóttir fæddist 8. mars, 1861 í Skagafjarðarsýslu. Dáin 23. desember, 1946 í Nýja Íslandi

Maki: 1888 Jón Sigurðsson fæddur í Snæfellsnessýslu 28. maí, 1862, d. 28. október, 1946 í Nýja Íslandi.

Börn: 1. Sigurdís Una f. 19. nóvember, 1890 2. Helgi f. 28. desember, d. 12. nóvember, 1970 3. Gestur Eyþór f. 1894, d. 29. apríl, 1919 4. Friðfinnur f. 30. júní, 1896 5. Sigurður 6. Vigdís f. 9. júní, 1905, d. í Kaliforníu 9. apríl, 1975.

Jón og María settust að á landi sínu árið 1888, þar hét Reykhólsstaðir. Þau þóttu einkar samhent hjón.