María Rögnvaldsdóttir

ID: 6540
Fæðingarár : 1870
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1963

Aftari röð: Rögnvaldur, Kjartan, Málmfríður, Ólöf, Halldór og Þorgils. Fyrir framan; Solveig, Kristján, Anna María, María og Guðrún. Mynd Dm

María Rögnvaldsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu 28. maí, 1870. Dáin í N. Dakota 25. desember, 1963.

Maki: 1. júlí, 1887 Kristján Halldórsson f. í Dalasýslu 8. júní, 1867, d. 23. apríl, 1950 í N. Dakota.

Börn: 1. Halldóra Ólöf f. 7. apríl, 1889 2. Halldór f. 12. nóvember, 1890 3. Málmfríður f. 10. september, 1893 4. Anna María f. 7. desember, 1895 5. Rögnvaldur f. 29. nóvember, 1898 6. Guðrún f. 22. júní, 1901 7. Solveig f. 17. maí, 1903 8. Þorgils f. 30. ágúst, 1905 9. Kjartan f. 5. maí, 1908.

María flutti árið 1874 vestur til Ontario í Kanada með móður sinni, Ólöfu Kjartansdóttur. Þær fluttu þaðan austur til Nova Scotia og settust að í Marklandi. Þaðan lá svo leið þeirra vestur til N. Dakota árið 1880. María og Kristján bjuggu alla tíð á landi sínu í Pembina sýslu.