
Marteinn Jónsson

Guðrún Ingimagnsdóttir
Marteinn Jónsson fæddist 9. janúar, 1855 í N. Þingeyjarsýslu.
Maki: 1902 Guðrún Ingimagnsdóttir f. í Gullbringusýslu árið 1870, d. 29. apríl, 1932.
Börn: 1. Halldóra 2. Margrét Friðrika 3. Daníel Eiríkur 4. Eiríkur Valdimar 5. Guðrún Kristbjörg
Marteinn fór einsamall vestur til Quebec í Kanada árið 1878. Fór áfram til Ontario og vann í Rosseau og Parry Sound en fór þaðan vestur til N. Dakota þar sem hann nam land en bjó þar ekki. Fór vestur til Seattle árið 1892 en sneri aftur austur og fór nú til Nýja Íslands. Keypti land suður af Gimli sem Skálabrekka hét og þar bjó hann í 20 ár. Guðrún fór einsömul vestur til Winnipeg í Manitoba. Hennar faðir var Ingimagn Eiríksson sem 1880 bjó í Borgarfirði. Þau fluttu vestur að Kyrrahafi árið 1918 til Vancouver og þar kom Marteinn fjölskyldu sinni fyrir en sjálfur fór hann norður á Hunterseyju þar sem lítl íslensk byggð var fyrir og þar nam hann land. Hann kom upp húsi og árið 1921 flutti hann fjölskyldu sína norður þangað.
