ID: 11536
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Eymundur Metúsalem Arngrímsson fæddist 3. maí, 1857 í N. Múlasýslu. Edmund Anderson eða E. M. Anderson vestra.
Maki: 2. maí, 1893 Björg Sigríður Ásbjörnsdóttir (Bertha Kline) f. 8. febrúar, 1858.
Börn: 1. Earl Emil f. 21. apríl, 1894 í Minneapolis 2. Marie Emily Anderson f. 15. nóvember, 1896 í Minneapolis.
Metúsalem flutti vestur til Kanada með systkinum sínum árið 1879 og settust þau að í Minnesota. Metúsalem bjó nærri Minneota þar til hann kvæntist en þá flutti hann til Minneapolis og bjó þar um árabil. Björg fór vestur til Kanada árið 1878 og þaðan lá svo leið hennar suður til Minnesota en þangað fór nokkur sytkini hennar.
