Móníka Guðmundsdóttir

ID: 8421
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1847
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1932

Móníka Guðmundsdóttir, William Eccles og Kristín Jónasdóttir. Mynd WtW

Móníka Guðmundsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu 26. febrúar, 1847. Dáin í Lundar árið 1932. Monica Eccles vestra.

Maki: 1) Jónas Jónasson fæddur í Eyjafjarðarsýslu 1848, d. þar 27. febrúar, 1887. 2) 13. nóvember, 1894 William Eccles af kanadískum ættum

Börn: 1. Svanhildur f. 1879, d. 1891 í Lundar. 2. Árni f. 1880, d. 27. febrúar, 1887 3. Kristín f. 1882 4. Guðrún f. 1886, d. 27. febrúar, 1887.

Móníka missti mann sinn og tvö barna sinna snemma árs, 1887. Hún sá enga aðra von en að flytja með dætur sínar tvær vestur um haf og það gerði hún árið 1888. Þær mæðgur komu til New York, fóru þaðan um Toronto í Ontario til Winnipeg í Manitoba. Þar fékk Móníka vinnu í verslun þrátt fyrir litla ensku kunnáttu. Hún kynntist Íslendingum og einn þeirra, Jón Helgason bauð henni starf hjá sér á bæ sínum skammt frá Lundar. Snemma árs, 1891 fór heilsa Svanhildar litlu að hraka og lést hún í september það ár. Gröf var tekin og sá Móníka sjálf um að jarðsyngja dóttur sína því enginn var presturinn. Séra Runólfur Marteinsson kom í byggðina árið 1894 og fús blessaði hann gröfina. Hún kynntist seinni manni sínum þarna í byggðinni og bjó með honum þar alla tíð.