ID: 17958
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1891

Narfi A Narfason og Jakobína G Bjarnadóttir Mynd AÓT 1917
Narfi Albert Guðbrandsson fæddist í Churchbridge í Saskatchewan 30. maí, 1891.
Maki: 22. júní, 1916 Jakobína Gróa Bjarnadóttir f. 3. maí, 1894 í Þingvallabyggð í Saskatchewan.
Börn: 1. Anna Margrét f. 27. júní,1917 í Vatnabyggð.
Narfi var sonur Guðbrands Narfasonar og Önnu M. Eiríksdóttur og ólst upp hjá þeim í Þingvallabyggð í Saskatchewan. Flutti með þeim árið 1899 í Vatnabyggð og settist fjölskyldan að nærri Foam Lake. Jakobína var dóttir Bjarna Jasonarsonar og Guðrúnar Eiríksdóttur.
