Oddfríður Halldórsdóttir

ID: 15810
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : Hnappadalssýsla
Dánarár : 1956

Oddfríður Halldórsdóttir fæddist í Hnappadalssýslu 30. maí, 1872. Dáin árið 1956.

Maki: Guðmundur Eiríksson fæddist í Rangárvallasýslu 8. október, 1878. Dáinn 1938 í San Diego. Þau skildu.

Börn: 1. Dorothea f. 1913, d. 1964.

Guðmundur lærði ljósmyndun í Reykjavík og þar kynntist hann Oddfríði. Hann flutti vestur til Kanada árið 1898 og fór til Bresku Kólumbíu. Oddfríður fór til Danmerkur sama ár og þaðan vestur til Kanada þar sem hún giftist Guðmundi. Þau fluttu til Spanish fork um aldamótin og bjuggu þar nokkur ár. Guðmundur var þar með ljósmyndastofu og littla verslun. Þaðan lá svo leiðin til San Diego þar sem Guðmundur stundaði fasteignasölu.