Oddný Jóhannesdóttir

ID: 9558
Fæðingarár : 1845
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1937

Oddný Jóhannesdóttir fæddist 31. júlí, 1845 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin í N. Dakota 5. ágúst, 1937.

Maki: 25. október, 1870 Magnús Jónsson f. 13. ágúst, 1842 í Skagafjarðarsýslu, d. árið 1925 í N. Dakota.

Börn: 1. Jóhannes f. 11. ágúst, 1873 2. Friðrik f. 1876, d. úr bólusótt í Nýja Íslandi 1876 3. Geirfinnur f. 4. febrúar, 1885 4. Jón (John) f. 31. mars, 1890. Dóttir, Ingibjörg Oddný dó skömmu eftir fæðingu.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og fóru til Nýja Íslands sama ár. Faðir Oddnýjar, Jóhannes Oddsson var þeim samferða vestur. Þau voru á Gimli fyrsta árið en námu land þar í grennd árið 1877 og nefndu Fjón. Vorið 1880 fluttu þau til Winnipeg og þaðan ári síðar í Thingvallabyggð í N. Dakota.