
Vestur á Washingtoneyju; Oddur Magnússon
Oddur Magnússon fæddist í N. Múlasýslu 24. júní, 1853. Dáinn 29. júlí, 1936 á Washingtoneyju.
Maki: 5. október, 1881 Guðrún Ingibjörg Gunnlaugsdóttir f. 1862, d. 1952.
Börn: 1. Mary f. 1881, d. 1946 2. Daníel f. 1882, d. 1962 3. Ole John Christian f. 1884 4. Ferdinand f. 1884, d. 1884 5. Ferdinand f. 1885, d.1918 6. Magnús f. 1888, d. 1973 7. Gunnar f. 1890, d. 1958 8. Oscar f. 1892, d. 1918 9. Albert Lake f. 1895, d. 1989 10. Edna f. 1897, d. 1977 11. Hermann f. 1900, d. 1970 12. Dóttir f. andvana 1904.
Oddur flutti vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873 og settist að á Washingtoneyju. Bjó þar alla tíð. Guðrún Ingibjörg fór vestur þangað með móður sinni, Ragnhildi Jónsdóttur og tvíburasystur sinni Maríu árið 1876.
