ID: 6670
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Ólafur Andrésson fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1856. Anderson vestra.
Maki: Guðrún Þorleifsdóttir f. 1858 í Skagafjarðarsýslu.
Börn: 1. Sigríður f. 1883 2. Jóhann Pétur f. 15. júlí, 1894, d. 12. ágúst, 1946.
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 og eftir fáein ár í Manitoba fluttu þau árið 1892 í Lögbergsbyggð í Saskatchewan. Þau komu þangað á afar erfiðum tíma því sléttan í fylkinu var þá að fara í gegnum gríðarlegt þurrkaskeið. Ólafur kom með tíu nautgripi og tókst honum að heyja nóg svo skepnurnar lifðu af mikinn harðindavetur.
