Ólafur Bjarnason

ID: 12401
Fæðingarár : 1879

Ólafur Bjarnason Mynd VÍÆ I

Ólafur Bjarnason fæddist í Borgarfirði eystra í N. Múlasýslu 3. desember, 1879.

Maki: 3. ágúst, 1903 Feldís Þorláksdóttir f. 16. október, 1881 í  N. Múlasýslu.

Börn: 1. Jóhann f. 23. október, 1903, drukknaði 5. nóvember, 1957 2. Guðmundur Björgvin f. 1904, drukknaði 30. október, 1930 3. Guðrún Sófía f. 1906 4. Herbert f. 1912 5. Jón f. 1904, drukknaði 1950 6. Victoría f. 1916 7. Ingibjörg f. 1918 8. Alda f. 1920 9. Anna f. 1921 10. Norma f. 1923.

Ólafur og Feldís fluttu til Manitoba árið 1903 og settust að á Gimli. Ólafur lagði sitt að mörkum til íslenska samfélagsins á Gimli, starfaði mikið í Lestrarfélaginu og þjóðræknisdeildinni. Hann vann hjá Armstrong Fisheries í 39 ár. Feldís var dóttir Þorláks Hallgrímssonar og Guðrúnar Eiríksdóttur.