Ólafur G Arngrímsson

ID: 11537
Fæðingarár : 1859
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1903

Ólafur G Arngrímsson Mynd Well Connected

Ólafur Guðjón Arngrímsson: Hann var fæddur í Vopnafirði, N. Múlasýslu árið 1859. Olafur G. Anderson vestra. Dáinn 1903.

Maki: 1) 1881 Sigurborg Sigurðardóttir f. í N. Múlasýslu árið 1859. Dáin 1889 2) Guðrún Pétursdóttir f. 1877 í N. Múlasýslu. Dáin 1956.

Börn: Með Sigurborgu 1. Gustaf  f. 1882  2. Sigrún (Nora) f. 1883; d. 1913  3. Barney f. 1885 4. Carl Emil f. 1886 5. María Guðrún (Runa) f. 1886; d. 1902 6. Bjarni Stefán f. 1888; d.1912. Með Guðrúnu 1.  Ólöf (Olive) Sigurbjörg f. 1895; d. 1916 2. Pétur Sigurður f. 1897 3. Herbert William f. 1899 4. Theodore f. 1901.

Ólafur flutti vestur ásamt systkinum sínum árið 1879. Hann settist að í Lincolnbyggð í Minnesota. Flutti seinna til Minneota og bjó þar. Sigurborg fór vestur með sínum foreldrum árið 1879.