
Ólafur Guðmundsson Goodman, Mynd Almanak 1912
Ólafur Guðmundsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu árið 1854. Dáinn í Alberta árið 1894. Goodman vestra.
Maki: Konkordía Sófóníasdóttir f. 1864 í N. Þingeyjarsýslu.
Börn: 1. Hólmfríður Anna 2. Jónína Laufey 3. Zóphonía. Þau eignuðust dóttur sem dó á barnsaldri. Sú mun hafa fæðst á undan Zóphoníu því hún bar sama nafn.
Ólafur fór vestur árið 1876 en Konkordía fór vestur með móður sinni, Hólmfríði Jónsdóttur árið 1883. Ólafur nam land í grennd við Grafton í N. Dakota og reyndi hveitirækt. Hann var óheppinn og leitaði annarra ráða, flutti vestur til Alberta og vann ýmis störf í Calgary. Hann var fyrstur Íslendinga til að setjast þar að og var löndum sínum í N. Dakota hjálplegur þegar þá fýsti vestur á kanadísku sléttuna um 1888. Hann dvaldi í Calgary ein sex ár en nam svo land í íslensku byggðinni norður við Red Deer ána þar sem drukknaði nokkrum árum seinna. Konkordía bjó áfram á landi þeirra en árið 1906 flutti hún til Red Deer með dætrum sínum.
