Ólafur Helgason

ID: 7379
Fæðingarár : 1848
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1901

Ólafur Helgason fæddist árið 1848 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn í Manitoba 8. júlí, 1901.

Maki: Engilráð Jónsdóttir f. 9. október, 1850, d. í Selkirk í Manitoba árið 1930. Hún giftist seinna Jóhanni Sigurði Jóhannssyni úr Eyjafjarðarsýslu.

Börn: 1. Eiríkur f. 15. janúar, 1876 2. Kristján Ingvar f. 1883.

Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og fóru til Þorgríms Jónssonar, bónda við Íslendingafljót í Nýja Íslandi. Engilráð var systir hans. Þaðan fluttu þau árið 1890 í Selkirk og bjuggu þar.