Ólafur Jóhannesson

ID: 10927
Fæðingarár : 1858
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1934

Ólafur Jóhannesson Mynd Dm III

Ólafur Jóhannesson: Fæddur 1858 í Blönduhlíð í Dalasýslu. Drukknaði í Manitoba 18. október, 1934.

Maki: Valgerður Guðmundsdóttir fædd 1860 að Skálum á Langanesi í N.-Þingeyjarsýslu.

Ólafur fór vestur til Winnipeg árið 1882 en Valgerður fór vestur ári síðar. Þau giftust árið 1887.

Börn: Eignuðust 6 börn í Vesturheimi og dóu 3 þeirra mjög ung. Upp komust 1: Jóhannes Kjartan d. 1910 2. Svanhildur d. 1934 3. Vilhjálmur.

Ólafur flutti til Norður Dakota árið 1883 og bjó um skeið í Grafton. Þau hjón fluttu norður til Winnipegosis árið 1899.