Ólafur Jónasson

ID: 9237
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1836
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Ólafur Jónasson fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1836. Dáinn í N. Dakota 25. maí, 1904.

Maki*: Elín Magnúsdóttir f. árið 1832 í S. Þingeyjarsýslu.

Börn: Með Guðrúnu Þorsteinsdóttur 1. Una f. 1865, Með Elínu: 1. Ásta f. 1. ágúst, 1875.

Ólafur og Elín fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876, hann með sínar dætur tvær en hún, þá ekkja, með sex börn. Hann hafði verið fyrirvinna hjá Elínu á Halldórsstöðum. Þau fóru til Nýja Íslands og námu land í Víðirnesbyggð suður af Gimli og kölluðu staðinn Melstað. Þaðan er ættarnafnið Melsted komið en synir Elínar tóku það allir. Árið 1881 fluttu þau suður í Garðarbyggð í N. Dakota.

*Í ritinu Saga Íslendinga í N. Dakota segir að Ólafur hafi verið stjúpfaðir barna Elínar þegar þau settust að í Garðarbyggð. Má því ætla að þau hafi gengið í hjónaband eftir að vestur var komið.