ID: 12573
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1924

Ólafur Jónsson Mynd WtW

Guðrún Björnsdóttir Mynd WtW
Ólafur Jónsson fæddist 15. júlí, 1857 í N. Múlasýslu. Dáinn 26.mars, 1924. Johnson vestra.
Maki: 3. nóvember, 1888: Guðrún Björnsdóttir f. 17. maí, 1864 í N. Múlasýslu, d. 28. desember, 1949.
Börn: 1. Kristín f. 27. september, 1890 2. Björn f. 10. desember, 1894 3. Aðalsteinn f. 26. apríl, 1898 4. Sigríður f. 9. desember, 1903.
Þau fluttu vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1900 og fluttu þaðan í Lundarbyggð þar sem þau bjuggu á eigin landi í tvö ár. Árið 1902 fluttu þau norður í Siglunesbyggð og settust að á Birch Island (Birkieyju) en þaðan hrakti þau mikið flóð í vatninu svo þau sneru til baka í Lundarbyggð og námu land norður af Lundar.
