ID: 19718
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1941
Ólafur Jónsson fæddist í Dalasýslu 2. október, 1863. Dáinn í Victoria í Bresku Kólumbíu 10. janúar, 1941. Oliver Johnson vestra.
Maki: 19. maí, 1888 Guðrún Arnfinnsdóttir f. í Snæfellsnessýslu árið 1862, d. í Victoria 8. maí, 1915.
Börn: 1. Jón Valdimar f. 4. ágúst, 1889, d. 21. mars, 1963 2. Björn Ingimar f. 10. desember, 1890, d. 12. janúar, 1964 3. Lilian f. 16. janúar, 1893, d. 11. mars, 1969 4. Anna Dagmar f. 6. maí, 1894.
Ólafur fór vestur til Winnipeg árið 1881 og bjó þar í tvö ár en flutti svo vestur að Kyrrahafi og settist að í Victoria á Vancouvereyju. Bjó þar alla tíð. Guðrún fór til Vesturheims árið 1886 og mun hafa farið til Victoria.
