Ólafur Ólafsson fæddist í Mjóafirði í S. Múlasýslu 14. september, 1899. Anderson vestra.
Maki: 3. apríl, 1926 Margrét Bjarnadóttir f. í Miðfirði í Húnavatnssýslu 18. júní, 1907, d. 1. desember, 1939.
Börn: 1. Ólafur Marvin f. 27. júní, 1928 2. Sólberg Ingvar f. 12. júlí, 1929 3. Irene Grace f. 5. júlí, 1930 4. Bjarni f. 1935 5. Margrét Elsie Ingibjörg f. 10. september, 1938.
Foreldrar Ólafs voru Ólafur Árnason og Sólrún Árnadóttir bæði úr Mjóafirði. Hann fór með þeim og systkinum sínum vestur um haf árið 1903, aðeins þriggja ára. Fjölskyldan settist að í Nýja Íslandi sama ár þar sem Ólafur ólst upp og þegar aldur leyfði, stundaði hann fiskveiðar á Winnipegvatni. Eftir að hafa unnið við það í 40 ár flutti hann til Vancouver þar sem hann vann við trésmíði. Margrét var dóttir Bjarna Guðmundssonar og Ingibjargar Benediktsdóttur frá Gafli í Víðidal. Með þeim fór Margrét til Vesturheims árið 1912.