Ólafur Pétursson

ID: 7499
Fæðingarár : 1879
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1952

Ólafur Pétursson

Ólafur Pétursson fæddist 17. janúar, 1879 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn í Winnipeg 7. febrúar, 1952.

Maki: Anna Amelía McNab f. 7. júní, 1884 í Garðar, í ND.

Börn: 1.Philip Markús f. 21. október, 1902 í Roseau í Minnesota 2. Elísabet Guðrún f. 6. mars, 1904 í Sask. 3. Rögnvaldur Franklín f. 16. apríl, 1906 í  Kristnesi í Sask. 4. Hannes Jón f. 24. október, 1908 í Sask 5. Ólafur Björn f. 30 apríl, 1910; d. 7. október, 1910 í  Foam Lake í Sask. 6. Anna Rose f. 11. desember, 1911 7. Ólafur Björn f. 1. desember, 1913 8. Lilja f. 12. ágúst,  1917 9. Pétur Bjarni f. 26. júní, 1921 10. Sigurður Gunnar f. 30. júní, 1925.

Ólafur flutti vestur til N. Dakota með foreldrum sínum, Pétri Björnssyni og Margréti Björnsdóttur og systkinum árið 1883. Hann fylgdi þeim þaðan til Roseau í Minnesota árið 1899 og til Saskatchewan árið 1903. Þaðan lá leiðin til Gimli í Nýja Íslandi og loks til Winnipeg árið 1912. Bjó þar síðan. Anna var dóttir Hallgríms Guðmundssonar og Guðrúnar Margrétar frá Fremrihlíð í N. Múlasýslu. Þau fluttu vestur árið 1876.