Ólafur Stefánsson

ID: 7078
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1964

Aftari röð Bogi, María, Stefán, Óli, Lilja. Sitjandi Inga, Ólafur, Ingibjörg og Sigrún Mynd RbQ

Ólafur Stefánsson fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1872. Dáinn í Vatnabyggð árið 1964.

Maki: 1900 Ingibjörg Sigurðardóttir f. 1875 í Skagafjarðarsýslu.

Börn: 1. Lilja 2. María Margrét 3. Stefán f. 1906 4. Sigrún f. 1908 5. Óli Ingvar f. 1911 6. Bogi f. 1913 7. Inga.

Ólafur flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1898 og Ingibjörg ári síðar. Þau gengu í hjónaband árið 1900 og fluttu á land sitt í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1904. Það var vestur í Wynyardbyggð, vestur af þorpinu.