ID: 14457
Fæðingarár : 1884

Ólafur Þorsteinsson Mynd VÍÆ I
Ólafur Steingrímur Þorsteinsson fæddist í S. Múlasýslu 11. maí, 1884.
Maki: 1) 1904 Kristín Andrésdóttir f. 19. desember, 1885, d. 16. mars, 1930 2) Þuríður Helga Bjarnasóttir f. 18. janúar, 1891.
Börn: Með Kristínu 1. Edward Ari f. 31. mars, 1905 2. Andrés f. 26. september, 1906.
Ólafur ólst upp í Nýja Íslandi, lærði svo trésmíði í Winnipeg en sneri sér svo að tónlist. Hann lærði bæði á fiðlu og píanó. Hann vann við trésmíðar ein 20 ár, fór þá að kenna tónlist. Vann við það í nærri 40 ár og á þeim tíma undirbjó hann fjölda nemenda undir próf við Royal Conservatory of Music í Toronto.