ID: 19373
Fæðingarár : 1888
Fæðingarstaður : Ísafjarðarsýsla
Olga Nielsen fæddist 31. janúar, 1888 í Ísafjarðarsýslu.
Maki: Björn Stefánsson fæddist 29. október, 1871 í N. Múlasýslu. Dáinn í Roseau í Minnesota 28. ágúst, 1962.
Börn: 1. Stefán 2. Guðrún 3. Anna Katrín 4. Jónas.
Olga var fárra mánuða þegar móðir hennar, Guðrún Halldórsdóttir og seinni maður hennar, Magnús Davíðsson fluttu vestur árið 1888. Faðir Olgu var Sophus Jörgen Nielsen, verslunarþjónn á Ísafirði. Magnús og Guðrún bjuggu fyrst í Brandon. Björn flutti vestur árið 1891 og kom fyrst til Winnipeg en settist svo að í Hallson í N. Dakota. Seinna flutti hann norður í Brandon og þaðan til Selkirk áður en hann settist að í Pineybyggð þar sem hann bjó eftir það. Magnús og Guðrún bjuggu fyrst í Brandon þar sem Björn kynntist Olgu.
