Ólína Egilsdóttir

ID: 13268
Fæðingarár : 1888

Ólína Egilsdóttir Mynd VÍÆ I

Ólína Egilsdóttir fæddist 12. ágúst, 1888 í N. Múlasýslu.

Maki: 15. júní, 1910 Páll Skarphéðinsson f. 17. september, 1882 í Borgarfjarðarsýslu.

Börn: 1. Margrét f. 8. júlí, 1917.

Páll flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1900. Móðir hans, Sigurbjörg Helgadóttir og bróðir höfðu þangað flutt árið 1897.  Hann gekk menntaveginn, fór í verslunarskóla í borginni og útskrifaðist þaðan 1905. Lauk svo prófi í endurskoðun frá skóla í Toronto árið 1908. Bjó í Winnipeg til ársins 1952, flutti þá til Gimli. Ólína fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum, Agli Árnasyni og Guðlaugu Stefánsdóttur árið 1904.