Ólína Guðmundsdóttir

ID: 5100
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : Strandasýsla
Dánarár : 1910

Ólína Guðrún Guðmundsdóttir fæddist í Strandasýslu 17. september, 1867. Dáin í Manitoba 21. nóvember, 1910.

Maki: Jóhannes Gíslason f. í Húnavastnssýslu 18. mars, 1857, d. í Manitoba árið 1923. Gillies.

Börn: 1. Elísabet Helga f. 8. febrúar, 1885, d. 2. ágúst, 1885 2. Kapitóla Klara (Capitola Clara) f. 13. september, 1886, d. 18. september, 1886 3. Archibald Armstrong f. 7. ágúst, 1888 4. Victor (Wictor) f. 1890 5. Frank f. 1892 6. Hekla f. 1895 7. Gestur Leonard f. 17. ágúst, 1900.

Ólína fór vestur til Manitoba árið 1878 með foreldrum sínum, Guðmundi Magnússyni og Helgu Jónsdóttur. Þau settust að í Argylebyggð. Jóhannes fór vestur til Manitoba árið 1876 og var fyrst um sinn í Winnipeg. Flutti seinna í Argylebyggð þar sem hann kvæntist Ólínu. Þau hófu búskap í Hólabyggð, voru seinna nærri Cypress River og loks nálægt Vita í suðvesturhorni fylkisins.