Ólöf Stefánsdóttir

ID: 16339
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1895

Ólöf Stefánsdóttir fæddist 19. júní, 1895 í Winnipeg.

Maki: 25. nóvember, 1911 Jón Árnason f. 19. ágúst, 1889 í Skagafjarðarsýslu.

Börn: 1. Árni f. 4. júlí, 1912 2. Stefán f. 7. nóvember, 1918 3. Óskar Sigurvin f. 15. september, 1920 4. Petrína Oktavía f. 9. október, 1923 5. Jón Herbert f. 16. ágúst, 1926 6. Viola f. 1. nóvember, 1928 7. Marian f. 8. júlí, 1936.

Foreldrar Ólafar, Stefán Ólafsson og Petrína Vigfúsdóttir fluttu til Vesturheims árið 1888 og bjuggu í Winnipeg í 12 ár. Fluttu þaðan í Álftavatnsbyggð í Manitoba þar sem þau bjuggu til æviloka. Jón flutti vestur til Manitoba árið 1905 með stjúpmóður sinni, Sigurveigu Ósk Friðfinnsdóttur. Jón stundaði búskap við Moosehorn og seinna nálægt Reykjavík við Manitobavatn. Þaðan lá svo leið hans til Gimli þar sem hann rak fiskverslun og leigði út sumarhús. Hann hafði áhuga á málefnum landa sinna í Kanada, skrifaði stundum greinar í Lögberg.