Oscar V Johnson

ID: 20683
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1933
Fæðingarstaður : N. Dakota

Oscar Victor Johnson Mynd VÍÆ V

Fyrir aftan Barney Stewart og Oscar Victor. Sitjandi f.v. LeAnn og Gail. Mynd VíÆ V.

Oscar Victor Johnson fæddist 16. mars, 1933 í Walhalla, N. D.

Maki: 31. ágúst, 1956 Gail Kohr f. 2. janúar, 1934. Johnson í hjónabandi.

Börn: 1. LeAnn f. 2. ágúst, 1957 2. Barney Stewart f. 14. mars, 1959.

Oscar var sonur Bjarna Valtýs Johnson og Málfríðar Kristjánsdóttur í Sacramento, Kaliforníu. Hann stundaði almennt grunnskóla- og miðskólanám  í Langdon, N. D. Stundaði framhaldsnám í flugstjórnar- og flugtækniskólum 1948-1953. Hann gekk í flugher Bandaríkjanna og starfaði þar alla ævi.