Ottó Jónsson

ID: 20482
Fæðingarár : 1886

Ottó Jónsson fæddist í Vopnafirði í N. Múlasýslu 2. október, 1886. Hrappsted vestra

Maki: 18. desember, 1915 Ágústína Gísladóttir Bíldfell f. í Vatnabyggð.

Börn: 1. Margaret f. 16. september, 1916 2. Valgerður f. 10. júní, 1921 3. Elín f. 3. júlí, 1926 4. Clara f. 23. febrúar, 1931 5. Marian f. 17. ágúst, 1934.

Otto var sonur Jóns Jóhannessonar Hrappsted og Margrétar Jónsdóttur. Þau fóru vestur árið 1893, Margrét komst þó ekki á leiðarenda, dó af barnsförum í skipinu á leið yfir Atlantshafið. Ottó fór með föður sínum til Winnipeg, þaðan í Argylebyggð og 1899 í Álftárdal nærri Swan River 1899. Ottó fór með Einari bróður sínum vestur í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1910. Hann settist að nærri Leslie. Ágústína var dóttir Gísla Jónssonar Bílfell og Valgerðar Eiríksdóttur í Vatnabyggð.