Pálína Þorleifsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu 24. september, 1869. Dáin í N. Dakota 18. janúar, 1939.
Maki: 1893 Jóhann Tómasson f. 25. október, 1869 í Eyjafjarðarsýslu, d. í Garðarbyggð 11. febrúar, 1949.
Börn: 1. Tómas (Thomas) f. 3. apríl, 1894 2. Þorleifur f. 16. september, 1895 3. Árni f. 14. mars, 1897, d. 18. maí, 1934 4. Þórdís f. 16. desember, 1900 5. Gamaliel d. í fæðingu 1903 6. Guðrún f. 2. júlí, 1905 7. Gamalíel f. 8. júlí, 1908 8. Lárus f. 26. júní, 1909 9. Steindór f. 8. janúar, 1912. Fóstursonur Richard Earnest f. 7. júlí, 1916.
Jóhann flutti vestur til N. Dakota árið 1888 með foreldrum sínum, Tómasi Jóhannssyni og Guðrúnu Árnadóttur. Pálína var fjölskyldunni samferða þangað, trúlega heitbundin Jóhanni. Þau bjuggu þar alla tíð.
